General News

Sjónarhorn flakkarans vígt í Eldfellshrauni

Atvinnuvegaráðherra vígði fyrsta áfanga listaverksins Sjónarhorn flakkarans við Eldfell í nýja hrauninu frá 1973.

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra vígði í dag fyrsta áfanga Sjónarhorns flakkarans, listaverks Ólafs Elíassonar.. Athöfnin fór fram við útsýnisskála sem staðsettur er í nýja hrauninu og við Eldfell sem myndaðist í eldgosinu árið 1973.. Verkið samanstendur af útsýnisskálanum og göngustíg sem liggur um hraunið og umhverfis Eldfell.. Frá þessu er greint í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu.. Auk ráðherra fluttu þeir Ólafur Elíasson höfundur verksins og Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar ávörp.. Í apríl sl.. veitti ráðherra styrk

til verkefnisins úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og var það hæsti styrkurinn sem úthlutað var úr sjóðnum fyrir árið 2026.. Styrkurinn fjármagnar að fullu lagningu göngustígsins sem er annar hluti verkefnisins.. Stígurinn fer um sömu leið og svonefndur Flakkari fór 1973, stór hraunfylla sem brotnaði úr Eldfelli í gosinu og rann með hraunstraumnum í átt að innsiglingunni.. Óttast var að Flakkarinn, ásamt öðru hraunflæði, myndi loka innsiglingunni og ógna með því grundvelli byggðar í Heimaey.. Flakkarinn flaut

ofan á glóandi hrauninu áður en hann var stöðvaður með hraunkælingunni sem var byltingarkennd aðferð á þeim tíma.. Köldum sjó og vatni var veitt í stórum stíl yfir hraunið sem dugði til að hægja á framrás hraunsins og bjarga innsiglingunni í Vestmannaeyjahöfn.. „Sem ráðherra ferðamála þykir mér sérstaklega ánægjulegt að sjá þetta listaverk verða að veruleika.. Náttúra, saga og menning Vestmanneyja eru seglar fyrir bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn, og ég veit að þetta verk

mun svo sannarlega auka á það aðdráttarafl sem Vestmannaeyjar hafa.. Ég hlakka til að sjá lokaútkomuna, þegar göngustígurinn verður tilbúinn, og þetta einstaka listaverk verður tekið í notkun í allri sinni dýrð,“ er haft eftir atvinnuvegaráðherra í tilkynningunni.

Sjónarhorn flakkarans, Ólafur Elíasson, Eldfell, Vestmannaeyjar, göngustígur, Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, Flakkari

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Are you human? Please solve:Captcha