Tedros WHO hughreystir Tenerife-búa vegna væntanlegrar komu skips

Tedros Adhanom Ghebreyesus sendi opið bréf til íbúa á Tenerife þar sem hann róar áhyggjur vegna væntanlegrar komu skips og leggur áherslu á að lítill faraldurssjúkdómur sé í umfjöllun.
Tedros Adhanom Ghebreyesus skrifaði í dag opið bréf til íbúa eyjarinnar um komu skipsins sem er væntanlegt í höfn á Tenerife á morgun.. „Ég veit að þið eruð áhyggjufull.. Ég veit að þegar þið heyrið orðið „faraldur“ og horfið á skip nálgast strendur ykkar, vakna minningar sem ekkert okkar hefur að fullu unnið úr,“ segir hann.. „En ég vil að þið skiljið mig vel: þetta er ekki önnur kórónuveira.. Lýðheilsuváin af völdum hantaveiru er áfram
lítil.. Kollegar mínir og ég höfum sagt þetta undanbragðalaust og nú segi ég það við ykkur aftur,“ skrifar Tedros í bréfinu.. Hann undirstrikar að enginn farþegi sýni einkenni sjúkdóms af völdum hantaveiru.. Sömuleiðis að sérfræðingur á vegum stofnunar sinnar sé um borð og að spænsk yfirvöld hafi skipulagt móttöku farþega og áhafnar skipsins gaumgæfilega.. Hann þakkaði forsætisráðherra Spánar persónulega fyrir að hafa samþykkt að taka við skipinu.. Hann sagði Spánverja sýna samstöðu og sinna siðferðislegri
skyldu sinni.. „Ég verðþarna sjálfur.. Ég hyggst ferðast til Tenerife til að fylgjast með þessari aðgerð sjálfur, standa við hlið heilbrigðisstarfsfólks, hafnarstarfsfólks, hafnarstarfsfólk og annars starfsfólks, og votta þessari eyju virðingu mína sem brugðist hefur við þessum erfiðu aðstæðum af reisn, samstöðu og samúð,“ skrifar Tedros.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun, Tedros Ghebreyesus, Tenerife, hantaveira, faraldur, skipamóttaka