iceland news

Lengi býr að fyrstu gerð: Hvað er opinn leikskóli?

Opinn leikskóli er rými fyrir foreldra og börn 0–5 ára þar sem einangrun minnkar og stuðningur kemur snemma.

Eitt af loforðum okkar jafnaðarmanna í Ísafjarðarbæ er að koma á fót opnum leikskóla, en hvað er opinn leikskóli?. Opinn leikskóli er rými þar sem foreldrar 0-5 ára barna geta komið með börn sín í umhverfi þar sem börnin geta leikið sér og foreldrar kynnst öðrum foreldrum í sama lífsfasa.. Börnin eru á ábyrgð foreldra, en starfsmaður á vegum sveitarfélagsins getur tekið frumkvæði að ýmsum viðburðum.. Að rjúfa einangrun foreldra í fæðingarorlofi er ekki einungis

gott fyrir foreldrana sjálfa heldur græða börnin á því að foreldrar þeirra fái að fylla á félagslega tankinn.. Félagsleg einangrun er stór áhættuþáttur fyrir fæðingarþunglyndi, en talið er að 10% mæðra og feðra fái fæðingarþunglyndi.. Við sem höfum verið í fæðingarorlofi vitum að það getur verið einmanalegt að vera einn heima með lítið barn, hvað þá í vondu veðri á dimmum dögum þegar erfitt getur verið að fara í göngutúra.. Síðan má færa ágætis rök

fyrir því að þetta sé jákvætt fyrir sambönd nýbakaðra foreldra að báðir hafi færi á að vera félagslega virkir.. Opinn leikskóli er starfsemi sem þekkist á vegum bæði sveitarfélaga og félagasamtaka víða á Norðurlöndunum.. Hann er mikið sóttur af aðkomufólki, en erfitt getur verið að kynnast nýju fólki á nýjum stað þegar baklandið er lítið og fáir sem geta passað fyrir mann.. Í opnum leikskóla skapast vettvangur þar sem fólk í svipuðum lífsaðstæðum fær að

kynnast, óháð uppruna.. Þá komast foreldrar af erlendum uppruna snemma í íslenskt málumhverfi með börnin sín í opnum leikskóla og geta sömuleiðis spurt starfsmanninn um ýmis mál sem koma upp þegar aðlagast þarf nýjum stað.. Að hafa starfsmann á vegum sveitarfélagsins í opnum leikskóla gerir sveitarfélaginu einnig kleift að grípa viðkvæm mál snemma með því til dæmis að benda foreldrum í viðkvæmri stöðu á aðstoð eða úrræði ef það á við.. Þá getur sveitarfélagið nýtt

opna leikskólann sem vettvang til þess að koma með gagnlega fræðslu til foreldra eða halda námskeið fyrir foreldra í rýminu þegar það á við.. Því fyrr sem við styðjum foreldra í hlutverki sínu, þeim mun meira forvarnargildi hefur það fyrir barnið.. Þetta þarf ekki að kosta mikið, það er til að mynda hægt að finna rými í húsnæði sem bærinn á nú þegar.. Þetta er ódýr lýðheilsuaðgerð sem er til þess fallin að bæta lífsgæði

og andlega heilsu nýbakaðra foreldra í samfélaginu okkar, heimamenn jafnt sem aðkomufólk.. Setjum X við S þann 16.. maí.. Höfundur er Sigurrós Elddís Huldudóttir lýðheilsufræðingur sem skipar 11.. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ.

opinn leikskóli, Ísafjarðarbær, fæðingarorlof, fæðingarþunglyndi, foreldrasamvera, sveitarfélag, lýðheilsa

Secret Link