iceland news

Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu

Ráðstefna á vegum Bifrastar fjallar í dag um breytt öryggisumhverfi, netógnir og vernd mikilvægra innviða með áherslu á norðurslóðir og ytri mörk Evrópu.

Ráðstefnan hefst klukkan 9 og stendur yfir til klukkan 16.. Uppbókað er á ráðstefnuna en streymi frá henni má finna hér fyrir neðan.. Ráðstefnan er liður í Jean Monnet Chair verkefninu (ISARCEUR) við Háskólann á Bifröst.. Áhersla er á strategískt hlutverk Íslands í öryggismálum norðurslóða og Evrópu.. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Bifrastar og sendiráða Póllands, Frakklands, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins á Íslandi.. Á ráðstefnunni koma saman fræðimenn, diplómatar og sérfræðingar til að ræða breytt öryggisumhverfi í kjölfar

innrásar Rússlands í Úkraínu, fjölþáttaógnir og vernd mikilvægra innviða.. Meðal ræðumanna verða: Dr.. Viktorija Vdovytsjenko frá Cambridge-háskóla, sem fjallar um umbreytingu evrópskra öryggismála.. Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi, sem ræðir öryggisstefnu sambandsins.. Rebecca Doffing frá bandaríska sendiráðinu og Aleksander Kropiwnicki, sendiherra Póllands.. Antoine Michon frá franska utanríkisráðuneytinu.. Fulltrúar frá Landhelgisgæslu Íslands og CERT-IS sem rýna í netógnir og viðbúnað á Norður-Atlantshafi.

öryggismál, norðurslóðir, ytri mörk Evrópu, netógnir, CERT-IS, Landhelgisgæslan

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Are you human? Please solve:Captcha


Secret Link