Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon

Nýjar loftárásir í Líbanon ógna viðkvæmu vopnahléi á meðan beðið er eftir viðbrögðum Írana við friðartillögum Bandaríkjanna.
Hið minnsta sjö féllu, þar á meðal eitt barn, í flugskeytaárás Ísraelshers í Saksakiyeh í Suður-Líbanon, að sögn líbanskra heilbrigðisyfirvalda.. Þá hafi fimmtán særst til viðbótar.. Ísraelsmenn höfðu gefið út rýmingartilmæli fyrir fjölda bæja í Líbanon, en Saksakiyeh var ekki meðal þeirra.. Ísraelski herinn heldur því fram að vígamenn Hezbollah hafi verið skotmörk árásarinnar og að meintir vígamenn hafi haldið úti hernaði í byggingunni.. Hezbollah og Ísraelsmenn hafa á undanförnum vikum skipst á árásum sín
á milli þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi sem samþykkt var 16.. apríl.. Á síðustu vikum hafa Bandaríkin haldið tvennar samningaviðræður milli fulltrúa Líbanon og Ísraels í Washington.. Reuters hefur eftir heimildarmönnum í bandaríska utanríkisráðuneytinu að frekari viðræður muni eiga sér stað á fimmtudag og föstudag.. Enn ekkert svar Bandaríkjamenn bíða nú eftir viðbrögðum Írana við friðartillögum sínum.. Bandaríski utanríkisráðherrann Marco Rubio sagði í gærkvöldi að búist yrði við viðbrögðum á komandi
klukkustundum en enn hefur ekkert heyrst frá Íran.. Samkomulagið gengur út á það að binda enda á stríð Bandaríkjanna og Íran og að gengið yrði aftur að samningaborðinu til að ræða framtíð kjarnorkuvopnaframleiðslu Írans.. Slíkar viðræður stóðu þegar yfir þegar Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir sínar á Íran í lok febrúar.. Katarskt olíuflutningaskip stefnir nú í gegnum Hormússund til Pakistan, en Reuters hefur eftir heimildarmönnum að Íran hafi heimilað siglingu skipsins um sundið í von
um að byggja traust við Katar og Pakistan, en þetta er fyrsta katarska olíuflutningaskipið sem fer um sundið frá því að stríðið hófst fyrir rúmum tveimur mánuðum.
Líbanon, Ísrael, Hezbollah, vopnahlé, Íran, Bandaríkin, átök