Glæpafaldur í bankakerfi og aukin kjörsókn fyrir kosningar

Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir tæknilegum ógnum í bankageiranum, fjölgun utan kjörfundaratkvæða og spennandi viðburðum í menningu og íþróttum.
Skipulögð glæpasamtök reyna ítrekað að komast inn fyrir netvarnir íslensku bankanna og nota gervigreind til að auðvelda sér verkið.. Rúmeni var á dögunum handtekinn grunaður um að hafa nýtt sér villu í kerfi Arion banka til að millifæra á sig um 160 milljónir.. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu segir nýjan veruleika blasa við.. Óvenjumargir hafa kosið utan kjörfundar fyrir þessar sveitarstjórnarkosningar en aukningin frá síðustu sveitarstjórnarkosningum nemur hátt í fjörutíu prósentum.. Hvað veldur?. Við ætlum
að afla svara í beinni útsendingu.. Fleiri hafa greinst með hina banvænu Hantaveiru en heilbrigðisyfirvöld hafa í gær og í dag reynt að koma farþegum skemmtiferðaskipsins Hondius til síns heima.. Skipstjóri Hondius birti átakanlegt myndband í dag þar sem hann rekur raunir farþeganna síðustu vikur.. Einhverjir merkustu dýrgripir íslenskra fornsagna, fimm handrit sem fengin eru að láni frá Svíþjóð, verða til sýnis í Eddu, húsi íslenskunnar, næstu sex mánuði.. Kristján Már Unnarsson fréttamaður okkar fékk
að fylgjast með þegar handritin voru tekin upp úr kössunum.. Í sportpakkanum mælum við okkur mót við Þórdísi Ólöfu Jónsdóttur sem sigraði Bakgarðshlaupið um helgina en hún stefnir á að slá heimsmet í kvennaflokki.. Og í Íslandi í dag kynnumst við ungri fjölskyldu sem setur það ekki fyrir sig að eiga lítið barn og ferðast sem aldrei fyrr.. Þetta og margt fleira í kvöldfréttum á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar á slaginu 18:30.
bankakerfi, öryggismál, sveitarstjórnarkosningar, Hantaveira, handrit, Bakgarðshlaupið, íslenskar fréttir