Trump gagnrýnir íranskt svar vegna vopnahléstillögu

Donald Trump hefur lýst yfir óánægju með viðbrögð Írana við nýrri vopnahléstillögu Bandaríkjanna, á sama tíma og spenna eykst á Persaflóa.
„Gjörsamlega óásættanlegt,“ skrifar Trump á samfélagsmiðla um svör Írana við nýjustu vopnahléstillögu Bandaríkjamanna.. Bandaríkjamenn sendu Írönum tillögu sína á föstudag.. Svör Írana bárust í gegnum pakistanska milligöngumenn í dag, að því er íranski miðillinn Tasmin greinir frá en miðillinn er að hluta ríkisrekinn.. Ekki liggur fyrir hvað kemur fram í svari Írana og Trump fer ekki í frekari smáatriði um innihald þess að öðru leyti en að honum líki ekki við það.. Vopnahlé hefur verið
í gildi í Íran síðasta mánuðinn en á meðan á því hefur staðið hefur illa gengið að tryggja stærra samkomulag um að binda enda á átökin.. Á sama tíma hafa Íranir og Persaflóaríki skipst á árásum sín á milli síðustu vikuna og því er vopnahléð á viðkvæmum stað.. New York Times hefur eftir ónafngreindum írönskum ráðamönnum að viðræður landanna tveggja gangi út á að tryggja 30 daga vopnahlé og að Íranir myndu stöðva herkví sína
um Hormússund, sem er ein mikilvægasta flutningaleið heimsins fyrir olíu.. Á meðan á því vopnahléi stæði myndu Bandaríkjamenn og Íranir vinna að stærra samkomulagi um frið.. Fyrr í vikunni hélt Trump því fram að stríðinu myndi ljúka von bráðar.. En í dag gaf CBS út myndbrot úr „60 minutes“-viðtali við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þar sem hann sagði að átökunum í Íran væri „ekki lokið“, enda ættu Íranir enn eftir að gefast upp á því
að geta auðgað úran til að framleiða kjarnorkuvopn.
Trump, Íran, vopnahlé, Hormússund, Bandaríkin, átök, Persaflói