Tækifærið er núna fyrir öflugan Skagafjörð

Högni Elfar Gylfason leggur fram áætlun um hvernig styrkja megi atvinnulíf og innviði í Skagafirði með áherslu á samgöngur, menntun og landbúnað.
Atvinnulíf er undirstaða öflugs samfélags.. Skagafjörður býr yfir miklum tækifærum.. Sveitarfélagið þarf að vinna markvisst með atvinnulífinu, styðja við vöruþróun og nýsköpun ásamt því að skapa aðstæður sem laða að fólk og fyrirtæki.. Jafnframt þarf sveitarfélagið að vera öflugur málsvari gagnvart ríkinu og gæta hagsmuna Skagafjarðar af festu.. Höfnina á Sauðárkróki verður að klára.. Við eigum að efla samstarf við Háskólann á Hólum og tryggja að verknám og menntun þróist í takt við þarfir atvinnulífsins..
Hlúa þarf að bændum og berjast fyrir því að öflugur og blómlegur landbúnaður þrífist áfram í héraðinu.. Samgöngur skipta einnig miklu máli.. Uppbyggður Kjalvegur sem kæmi niður Goðdalafjall í Lýtingsstaðahreppi myndi hafa gríðarlega jákvæð áhrif á ferðaþjónustu í Skagafirði með stórauknum fjölda ferðamanna auk þess að lækka flutningskostnað til muna.. Bættar vegasamgöngur innan héraðs eru verkefni sem skipta framtíð svæðisins miklu máli.. Má þar nefna tengingu frá Kjálkavegi yfir í Lýtingsstaðahrepp innanverðan sem myndi hafa
afar jákvæð áhrif á alla þjónustu á svæðinu, þar með talið ferðaþjónustu.. Þá verður að minnast á þá vegi sem fyrir eru í sveitarfélaginu.. Þeir bera ekki vitni um mikinn metnað ráðherra málaflokksins undanfarin ár, enda aragrúi lélegra malar- og moldarvega ásamt gömlum ónýtum slitlagsvegum í firðinum.. Sveitarfélagið þarf að setja aukinn þrýsting á gerð jarðganga undir Öxnadalsheiði í öryggisskyni fyrir íbúa Skagafjarðar og aðra landsmenn.
Skagafjörður, atvinnulíf, samgöngur, nýsköpun, landbúnaður, Sauðárkrókur, Högni Elfar Gylfason