Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur að birta lokatölur kosninga

H-listi Strandar til framtíðar og Ö-listi Ströndungs fengu báðir tvo menn kjörna og S-listi Samstöðu einn.
Í tilkynningu sem birt er á vef sveitarfélagsins, sem er í austanverðum Eyjafirði, segir að búið sé að telja öll atkvæði í Svalbarðsstrandarhreppi og birta niðurstöður.
Við sveitarstjórnarkosningarnar voru 377 á kjörskrá.
295 greiddu atkvæði eða 78,2 % kosningaþáttaka, af þeim voru 4 auðir og 3 ógildir.
Atkvæðin skiptust þannig: H-listi Strönd til framtíðar fékk 100 atkvæði og 2 menn kjörna S-listi Samstöðu fékk 67 atkvæði og 1 mann kjörinn Ö-listi Ströndungs fékk 121 atkvæði og 2 menn kjörna Í nýrri sveitarstjórn eiga því sæti: Bjarni Þór Guðmundsson Ö-listi Ólafur Rúnar Ólafsson H-listi Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir S-listi Árný Þóra Ágústsdóttir Ö-listi Gréta María Halldórsdóttir H-listi
Svalbarðsstrandarhreppur, lokatölur, sveitarstjórnarkosningar, kosningaþáttaka, kjörnir fulltrúar, austanverður Eyjafjörður