iceland news

Segir Krist­rúnu dreifa ó­sannindum um Sjálfstæðisflokkinn

Hildur Björnsdóttir svarar ásökunum Kristrúnar um sölu Orkuveitunnar og vísar til innanhússátaka í Samfylkingunni.

Kristrún mætti í viðtal í hlaðvarp Ólafs Arnarsonar fjölmiðlamanns, en DV hefur birt frétt upp úr spjalli þeirra undir fyrirsögninni Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík.. Í viðtalinu segir Kristrún að Sjálfstæðisflokkurinn hafi í gegnum tíðina átt langa sögu af stórfelldri eignasölu.. Samfylkingin hafi þurft að taka við brotnu búi í Reykjanesbæ eftir efnahagshrunið.. „Þar sem var búið að selja nær allar eignir, orku- og veitufyrirtæki samfélagsins..

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var síðast við völd hérna í Reykjavík, þá seldur þeir Landsvirkjun,“ segir Kristrún og bætir við: „Og þeir reyndu að selja Orkuveituna, Ólafur.. Og ég segi bara, Sjálfstæðisflokkurinn vill selja orkuna okkar.. Við sáum nú bara síðasta útspil af hálfu formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins í landsmálunum þar sem þau töluðu, ég meina, það er ekki einu sinni hægt að búa þetta til en þetta er til á blaði, Ólafur.. Þau töluðu um að

selja RARIK og Landsnet.. Þetta eru fyrirtæki í fákeppni ef ekki í rauninni beinlínis einokunarstöðu.“ Ljúft og skylt að svara Hildur Björnsdóttir gefur ekki mikið fyrir þessi ummæli Kristrúnar.. „Mér er það bæði ljúft og skylt að svara dylgjum forsætisráðherra: Það er hvorki stefna Sjálfstæðisflokksins, né mín, að selja Orkuveituna.. Það hefur legið skýrt fyrir í okkar málefnaskrá frá upphafi.. Næsta mál,“ segir Hildur Björnsdóttir á Facebook en hún vill meina að þessi ummæli Kristrúnar

séu til marks um sögulegar sættir innan Samfylkingarinnar.. „Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur nú lagst á sveif með aukaleikaranum, Degi B.. Eggertssyni, við að dreifa ósannindum um stefnu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.. Örvæntingin er ótrúlegur mannasættir.“ Hvatti til að strikað yrði yfir Dag Þar vísar Hildur væntanlega til þess þegar Kristrún hvatti til þess í skilaboðum til stuðningsmanns að strikað yrði yfir nafn Dags B.. í síðustu þingkosningum.. Þar kallaði hún Dag aukaleikara innan Samfylkingarinnar sem vakti

talsverða eftirtekt.. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að mælast með talsvert forskot á Samfylkinguna í könnunum og má ljóst vera að það verður mikið kapp á milli flokkanna nú á lokadögum kosningabaráttunnar.

Kristrún Frostadóttir, Hildur Björnsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn, Orkuveita Reykjavíkur, kosningabarátta, Samfylkingin, deila

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Are you human? Please solve:Captcha


Secret Link