General News

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki

Gáfulegt fólk lýsir því að þögn, einvera, langar bækur og klassísk tónlist hjálpi við geðheilsu og streitu.

Þrátt fyrir að því sé oft stillt þannig upp að það sé kostur að vera mjög gáfaður, að það færi fólki bæði persónulegan og félagslegan ávinning, sem meðalmaðurinn upplifir ekki endilega, þá er ekki alltaf auðvelt að vera mjög gáfaður.. Samuel Kohlenberg, sem er að sögn sérfræðingur á þessu sviði, segir að mjög greint fólk upplifi oft ósanngjarnar væntingar og glími oftar við áskoranir varðandi geðheilsu sína en jafnaldrar þeirra.. Þetta fólk hafi tilhneigingu til

að vera gagnrýnið á sjálft sig og um leið fullkomnunarsinnar.. Þetta skapi meira stress í hversdagslífinu.. Sem betur fer hefur margt af mjög greinda fólkinu þróað með sér venjur og áhugamál sem mynda mótvægi við þessar áskoranir.. Þetta er eitt og annað sem mjög greinda fólkinu finnst afslappandi en flestir aðrir þola ekki.. Þetta snýst ekki eingöngu um afslöppun, heldur um að finna innri ró og andlegt jafnvægi.. Meðal þess sem mjög greinda fólkinu finnst

afslappandi er eftirtalið: Að vera alein(n) – Margt mjög gáfað fólk kann vel að meta að vera eitt en einvera getur, miðað við niðurstöður rannsóknar sem var birt í Journal of Personality, aukið sjálfsvitund og bætt skapið.. Þögn – Þögn skapar rými fyrir innri ró og til að ná stjórn á tilfinningunum.. Þetta snýst ekki um að láta sér leiðast, heldur um að draga sig í hlé frá stöðugu áreiti.. Rannsókn frá 2007 sýndi fram

á að þögn ýtir undir sköpunargleði og nýsköpun.. Langar bækur – Samkvæmt því sem kemur fram í Scientific American getur lestur á löngum skáldsögum eða bókmenntaverkum aukið samkennd, íhugun og tilfinningalega stjórn.. Aðrir verða kannski óþolinmóðir við lestur en mjög gáfað fólk nýtur þess að kafa djúpt í flókna texta sem vekja það til umhugsunar.. Klassísk tónlist -Klassísk tónlist hjálpar til við að draga úr stressi og bæta einbeitinguna.. Fyrir mjög gáfað fólk er klassísk

tónlist ekki bara eitthvað í bakgrunninum, heldur aðferð til að skapa innri ró og bæta frammistöðu heilans í annríki hversdagsins.

gáfað fólk, geðheilsu, streita, einvera, þögn, langar bækur, klassísk tónlist

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Are you human? Please solve:Captcha