iceland news

Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum

Atvinnurekendur á Ártúnshöfða glíma við mikla óvissu vegna útrunninna lóðaleigusamninga. Stjórnmálamenn viðurkenna vandann en lausnir láta á sér standa.

Fyrir um tveimur árum óskaði skrifstofa borgarstjóra og borgarritara eftir því að borgarráð heimilaði útgáfu tímabundinna lóðaleigusamninga á Ártúnshöfða því fjöldi þeirra væri útrunninn eða að renna út.. Ekki væri tímabært að endurnýja samningana fyrr en nýtt deiliskipulag hefði tekið gildi sem er staðan enn í dag.. Lóðaleigusamningar sem hafa verið endurnýjaðir eru ýmist til 2028, 2033 eða 2040.. Um sextíu lóðir á Ártúnshöfða eru leigulóðir samkvæmt samningum við borgina.. Borgin mun hins vegar greiða

fyrir um hundrað lóðir á svæðinu þurfi fyrirtækin þar að víkja á næstu árum eða áratugum vegna komandi deiliskipulags.. Fyrirtæki sem samþykktu á sínum tíma að greiða t.d.. gatnagjöld eru meðal þeirra sem borgin mun greiða svokallað uppgreiðslugjald komi til þess að þau þurfi að víkja.. Grafalvarleg staða Fyrirtækjaeigendur og rekstraraðilar á leigulóðunum hittu frambjóðendur í dag til að reyna að átta sig á afstöðu þeirra til málsins.. „Hér hafa lóðaleigusamningar runnið út og við

höfum ekki fengið endurýjun á þeim.. Og sú endurnýjun sem hefur verið boðin er til þriggja ára eða ýmist til 2028, 2033 eða 2040 og án uppkaupsákvæða sem þýðir að menn standa frammi fyrir því að vera með verðlausa eign,“ segir Borgþór Stefánsson eigandi Vélsmiðjunnar Hörku og talsmaður fyrirtækja og rekstraraðila á Ártúnshöfða.. Aron Wei Quan rekstrarstjóri Fönix er einnig talsmaður fyrirtækja og rekstraraðila á Ártúnshöfða.. Hann tekur undir áhyggjur kollega síns.. „Það er ekki

hægt að selja eignir, það er erfitt að fara í fjárfestingar eða fara í fjármögnun.. Hljóðið í fólki er mjög þungt.. Við förum fram á að borgin semji við okkur til lengri tíma til að tryggja stöðugleika eða semji við okkur með uppkaupsákvæði svo hægt sé að tryggja verðmæti á svæðinu,“ segir Aron.. „Það er búið að reyna ná sambandi við borgina í uppundir tvö ár, nú er þolinmæðin á þrotum,“ segir Borgþór.. Allir frambjóðendur

vilja leysa málið Frambjóðendum allra framboða var boðið á fund fyrirtækja og rekstrareigenda á Ártúnsholti í dag og mættu fulltrúar allra þeirra nema Viðreisnar.. Fulltrúar frá meirihluta og minnihluta sem fréttastofa ræddi við í dag voru allir á einu máli um að það þyrfti að leysa úr málinu.. „Þetta er mjög erfið staða sem mörg fyrirtæki eru hér í.. Við þurfum að taka samtalið við þau og komast að því hvaða leið er fær fyrir

þau því planið er ekki að keyra fyrirtækin í þrot,“ segir Alexandra Briem formaður borgarráðs og frambjóðandi Pírata.. „Það er fyrirhugað að gera mönnum að rýma sitt húsnæði og koma sér af lóðinni með eigin húsnæði án þess að fá neinar bætur fyrir.. Þetta er algjörlega óboðleg staða og við stöndum með fyrirtækjunum hér með lausnir þeirra mála,“ segir Hildur Björnsdóttir frambjóðandi Sjálfstæðisflokks.. „Gagnrýnin er alveg réttmæt og ég held að skipulegsyfirvöld og stjórnvöld megi

setjast aðeins niður og skoða hvern samning fyrir sig og leggja þennan kapal til að eyða óvissu.. Það er verkefni næsta kjörtímabils,“ segir Líf Magneudóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs og frambjóðandi Vinstrisins.. Aðspurð hvort það hefði ekki mátt gera á síðustu kjörtímabilum svarar Líf: „Það er auðvitað búið að vera að vinna að þessu og undirbyggja þetta,“ „Þetta er bara lifandi dæmi um það hvernig skipulagsstefna borgarinnar er að ganga af atvinnulífinu dauðu.. Hér eru

fyrirtækjaeigendur í fullkominni óvissu, þeir geta ekki fengið lán út á eignir eða selt þær því verðlausar ef lóðaleigusamningurinn rennur út.. Þeir sinna ekki viðhaldi því óvissan um lóðina er alger,“ segir Einar Þorsteinsson frambjóðandi Framsóknarflokksins.. Aðspurður hvort málið hafi ekki komið inn á hans borð þegar hann var borgarstjóri svarar hann: „Nei, þetta kom ekki mikið inn á mitt borð þá.“ „Tónninn sem þetta er að gefa er fráleitur.. Er þetta það sem lóðaleigendur

í Kringlunni mega eiga von á þegar lóðaleigusamningar renna þar út?. Eða jafnvel fólk með sín heimili?“ spyr Ari Edwald oddviti Miðflokksins sem segir nálgun borgarinnar í málinu fráleita.

Ártúnshöfði, lóðaleigusamningar, borgarmál, atvinnulíf, Reykjavík, skipulagsmál

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Are you human? Please solve:Captcha


Secret Link