iceland news

Trump gagnrýnir óásættanlegt svar Írana um vopnahlé

Trump segir svar Írana við vopnahléstillögu Bandaríkjamanna „óásættanlegt“. Íranir hafi svarað í gegnum pakistanska milligöngua og viðræður snúist um 30 daga vopnahlé.

„Gjörsamlega óásættanlegt,“ skrifar Trump á samfélagsmiðla um svör Írana við nýjustu vopnahléstillögu Bandaríkjamanna.. Bandaríkjamenn sendu Írönum tillögu sína á föstudag.. Svör Írana bárust í gegnum pakistanska milligöngumenn í dag, að því er íranski miðillinn Tasmin greinir frá en miðillinn er að hluta ríkisrekinn.. Ekki liggur fyrir hvað kemur fram í svari Írana og Trump fer ekki í frekari smáatriði um innihald þess að öðru leyti en að honum líki ekki við það.. Vopnahlé hefur verið

í gildi í Íran síðasta mánuðinn en á meðan á því hefur staðið hefur illa gengið að tryggja stærra samkomulag um að binda enda á átökin.. Á sama tíma hafa Íranir og Persaflóaríki skipst á árásum sín á milli síðustu vikuna og því er vopnahléð á viðkvæmum stað.. New York Times hefur eftir ónafngreindum írönskum ráðamönnum að viðræður landanna tveggja gangi út á að tryggja 30 daga vopnahlé og að Íranir myndu stöðva herkví sína

um Hormússund, sem er ein mikilvægasta flutningaleið heimsins fyrir olíu.. Á meðan á því vopnahléi stæði myndu Bandaríkjamenn og Íranir vinna að stærra samkomulagi um frið.. Fyrr í vikunni hélt Trump því fram að stríðinu myndi ljúka von bráðar.. En í dag gaf CBS út myndbrot úr „60 minutes“-viðtali við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þar sem hann sagði að átökunum í Íran væri „ekki lokið“, enda ættu Íranir enn eftir að gefast upp á því

að geta auðgað úran til að framleiða kjarnorkuvopn.

Trump vopnahlé, Íran Bandaríkin, Hormússund, pakistanskir milligöngumenn, 30 daga vopnahlé, Benjamin Netanjahú

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Secret Link