iceland news

Saman gerum við góðan bæ enn betri í Vestmannaeyjum

Eyjalistinn leggur fram metnaðarfulla áætlun um bætta þjónustu, öflugt atvinnulíf og aukna velferð í Vestmannaeyjum með áherslu á samfélagslega festu.

Við í Eyjalistanum trúum því að sterkar Vestmannaeyjar byggist á öflugri þjónustu, ábyrgum rekstri og skýrri framtíðarsýn.. Við viljum byggja upp samfélag þar sem fjölskyldur, börn og eldri borgarar njóta góðs stuðnings og þar sem tækifæri eru fyrir alla.. Menntun og uppeldi Við viljum tryggja að aðstaða og þjónusta við börn og fjölskyldur sé til fyrirmyndar.. Þess vegna ætlum við að tryggja byggingu nýs leikskóla við Löngulág á kjörtímabilinu með möguleika á stækkun.. Við viljum

halda áfram að styðja við foreldra með heimgreiðslum og skoða hækkun á greiðsluþaki ef þörf er á.. Við leggjum áherslu á að styrkja skólana með ráðningu fjöltyngisstjóra, tryggja áfram góða sérkennslu og öfluga íslenskukennslu fyrir alla nemendur.. Við ætlum að halda áfram að styðja við Kveikjum neistann, sem hefur komið vel út og vakið landsathygli.. Við viljum tryggja gott fæði, vel búna skóla og áframhaldandi viðhald á skólahúsnæði.. Fjölskyldur og velferð í öndvegi Við viljum

að allir hafi aðgengi að tómstundum og öflugu félagslífi.. Þess vegna ætlum við að hækka og stigskipta frístundastyrk upp í 75.000 krónur og fjölga aðildarfélögum.. Við leggjum áherslu á öfluga velferðarþjónustu og tryggjum áfram aðgengi að sálfræðingi, iðjuþjálfa og þroskaþjálfa.. Við viljum bæta aðgengi, skapa fleiri atvinnutækifæri fyrir fatlað fólk og stofna endurhæfingarmiðstöð fyrir þá sem standa utan vinnumarkaðar.. Menning og samfélag Menningin er hjartað í samfélaginu okkar og við viljum efla hana.. Við ætlum

að kanna möguleikann á stækkun Einarsstofu í Safnahúsi og halda áfram verkefninu „Viltu hafa áhrif”.. Við styðjum við fjölbreytta menningar og listsköpun og viljum nýta Stakkagerðistún betur sem lifandi samkomustað fyrir alla.. Skipulag, umhverfi og fallegri bæjarbragur Við viljum vinna markvisst og með meira gagnsæi þegar kemur að framkvæmdum bæjarins.. Við ætlum að bæta umferðaröryggi, halda áfram uppbyggingu leikvalla og tryggja að lóðir séu tilbúnar áður en þeim er úthlutað.. Við viljum halda áfram að

bæta sorpmál, fjölga grenndarstöðvum og gera bæinn enn snyrtilegri og vistvænni.. Atvinna og framtíðartækifæri Við viljum styðja áfram við öflugt atvinnulíf, halda áfram vinnu við uppbyggingu stórskipahafnar og styðja vel við ferðaþjónustu.. Við viljum skapa betri aðstæður fyrir nýsköpun og styðja við frumkvöðla sem vilja byggja upp framtíðina í Eyjum.. Hagsmunir Eyjamanna Við munum standa fast á því að hagsmunir Vestmannaeyja fái það vægi sem þeir eiga skilið.. Við þrýstum á bættar samgöngur, fleiri flugferðir

og betri þjónustu.. Við ætlum að berjast fyrir öflugri heilbrigðisþjónustu, nýju hjúkrunarheimili og auknum úrræðum hér í Eyjum.. Með ábyrgð, metnað og skýra sýn Við trúum á ábyrga fjármálastjórn, raunhæfar lausnir og skýra forystu.. Við hlustum á íbúa, vinnum saman og klárum verkefnin.. Við hjá Eyjalistanum elskum Vestmannaeyjar og ætlum svo sannarlega að halda áfram að gera góðan bæ enn betri.. Erlingur Guðbjörnsson Skipar 3 sæti Eyjalistans.

Vestmannaeyjar, Eyjalistinn, velferð, samgöngur, atvinnulíf, stefnuyfirlýsing

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Are you human? Please solve:Captcha


Secret Link