Margir á leið í frí og það getur haft áhrif á kosninganótt

Meira en þúsund kjósa utankjörfundar á höfuðborgarsvæðinu í kvöldfréttum og búist er við að aukning tengist uppstigningardegi.
Þetta er meðal þess sem fram kom í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar í kvöld frá Hlíðarsmára þar sem fram fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla.. Fréttastofa ræddi við Sigríði Kristinsdóttur sýslumann á höfuðborgarsvæðinu og tók nokkra kjósendur sem greiða atkvæði utankjörfundar tali.. Flestir eru að fara til útlanda eða út á land, enda uppstigningardagur á fimmtudag og kjörið að taka sér frí á föstudag og lengja helgina.. Tæp fimmtán þúsund manns þegar búin að kjósa „Hjá sýslumanni hafa
1590 manns kosið utankjörfundar í dag.. Alls hafa um 9240 kosið frá því við opnuðum 17.. apríl og hjá öllum sýslumönnum og sendiráðum hafa 14.715 kosið utankjörfundar,“ segir Sigríður.. „Okkur sýnist þetta vera um þrjátíu prósenta aukning hér á höfuðborgarsvæðinu og á landsvísu er þetta um 39 prósenta aukning frá 2022,“ segir Sigríður.. Erfitt sé að segja til um hvað valdi en Sigríður segist skjóta á að þetta sé vegna uppstigningardags og möguleikans á langri
helgi sem valdi því að margir hyggi á ferðalög.. Utankjörfundaratkvæði eru talin síðust, ekki fyrr en eftir að kjörstaðir loka klukkan 22:00.. Með slíkan fjölda geti farið svo að úrslit muni víðast hvar ráðast á þessum atkvæðum.. „Það getur farið svo, ef það er svona aukning getur verið að úrslitin liggi ekki fyrir fyrr en byrjað er að telja.“
utankjörfundaratkvæði, kosningar, uppstigningardagur, frí, kosninganótt, sýslumaður, höfuðborgarsvæðið