iceland news

Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun

Þrír létust vegna hantaveiru um borð í Hondius. Fimm Frakkar í einangrun eftir að einn sýndi einkenni í flugvél heim.

Þrír hafa látist vegna hantaveiru um borð í hollenska skemmtiferðaskipinu Hondius sem er nú komið til Tenerife.. Vinna stendur nú yfir að koma farþegum sem eru einkennalausir til sinna heimalanda.. Farþegar og áhöfn, alls um hundrað og fimmtíu manns, hafa verið skimaðir af spænskum heilbrigðisyfirvöldum til að tryggja að þeir séu áfram einkennalausir.. Sebastien ​Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, greinir frá þessu á X, en þar kemur fram að fimm Frakkar hafi verið fluttir með flugvél heim

til Frakklands í kjölfar þess sem skipið lagði að höfn við kanaríeyjunnar Tenerífe.. Einn þeirra sýndi einkenni í flugvélinni á leiðinni heim, að sögn Lecornu.. Sjá einnig: Hantaveiran „Þess vegna voru þessir fimm farþegar settir umsvifalaust í stranga einangrun þar til annað verður ákveðið,“ skrifar Lecornu, sem segir að þeir muni hljóta læknisaðstoð og gangast undir smitpróf og heilsufarsskoðun.. „Strax í kvöld mun ég gefa út tilskipun sem gerir kleift að koma á viðeigandi einangrunarráðstöfunum

fyrir þá sem hafa verið í snertingu við smitaða og til verndar almenningi,“ skrifar franski forsætisráðherrann enn fremur og bætir við að heilbrigðisráðherra landsins, Stéphanie Rist, muni tjá sig um málið í kvöld.. Svo vitað sé hafa engir Íslendingar komist í snertingu við veiruna.. Embætti Landlæknis á Íslandi birti á dögunum tilkynningu á vef sínum með upplýsingum um veiruna.. Þar er útskýrt að hantaveirur séu hópur veira sem berast með nagdýrum.. Fólk smitist yfirleitt eftir

nánd við sýkt nagdýr eða þvag, saur eða munnvatn þeirra og fæstar hantaveirur berist milli manna.. Andesveira sé þó mikilvæg undantekning.

hantaveira, Hondius, Tenerife, einangrun, farþegar, Spánn, heilbrigðisráðstafanir

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Secret Link