Einar Ólafsson minnst sem brautryðjanda í flugheiminum

Einar Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Cargolux, er látinn. Hann var lykilmaður í mótun félagsins og íslenskra áhrifa í fluggeiranum í Lúxemborg.
Hann stýrði Cargolux sem forstjóri um tólf ára skeið frá stofnun þess árið 1970 og til ársins 1982 og vann síðan að sérverkefnum hjá félaginu til ársins 1983.. Á fréttasíðu RTL Luxembourg segir að Einar hafi verið einn af lykilmönnum í uppbyggingu Cargolux á upphafsárum félagsins.. Enskumælandi miðillinn Luxembourg Times rifjar upp að Einar hafi byrjað sem stöðvarstjóri Loftleiða í Lúxemborg árið 1965 þegar félagið varð þekkt sem hippaflugfélagið.. Þýskumælandi fréttamiðillinn Luxemburger Wort vitnar í
gamalt viðtal þar sem Einar lýsir því að í upphafi hafi nánast ekkert verið á Findel-flugvelli.. Þar hafi skort alla aðstöðu til vöruafgreiðslu.. Frönskumælandi vefurinn L’essentiel fjallar um forystuhlutverk Einars á fyrstu árum fyrirtækisins.. Fréttavefurinn Virgule fjallar einnig um feril Einars.. Cargolux minnist Einars á samfélagsmiðlum sínum.. „Sem framsýnn leiðtogi og brautryðjandi í fraktflugi gegndi Einar Ólafsson lykilhlutverki í mótun Cargolux á upphafsárum þess.. Stefnumótandi sýn hans, forysta og frumkvöðlaandi lagði grunninn að fyrirtæki okkar
sem hefur haldið áfram að vaxa í meira en fimm áratugi,“ segir Cargolux í kveðju sinni.. Cargolux er í dag stærsta fraktflugfélag í Evrópu og það sjötta stærsta á heimsvísu.. Það er jafnframt eitt stærsta og mikilvægasta fyrirtæki Lúxemborgar, í starfsmannafjölda það tíunda stærsta með um 3.200 starfsmenn.. Á Findel-flugvelli rekur Cargolux stóra fraktflutningamiðstöð og viðhaldsstöð með flugskýli.. Skýlið rúmar tvær Boeing 747-risaþotur en félagið er núna með þrjátíu slíkar vélar í flugflota sínum, bæði
747-400 og 747-8.. Cargolux hefur jafnframt pantað tíu Boeing 777-8 fraktþotur til að leysa af 747-400 þoturnar.. Velta Cargolux á síðasta ári nam 3.406 milljónum dollara, eða sem svarar 417 milljörðum íslenskra króna.. Hagnaður eftir skatta nam 465 milljónum dollara, andvirði 57 milljarða íslenskra króna.. Loftleiðamenn stofnuðu félagið í samstarfi við sænskt skipafélag og stjórnvöld í Lúxemborg og fleiri þarlenda aðila.. Í upphafi héldu Íslendingar utan um flugrekstur Cargolux og varð til stór íslensk flugnýlenda
í Lúxemborg.. Framan af áttu Loftleiðir og síðar Flugleiðir þriðjungshlut í félaginu til ársins 1982 þegar stjórn Flugleiða ákvað að taka ekki þátt í hlutafjáraukningu.. Við það minnkaði hlutur Flugleiða niður í 3,3 prósent.. Þann hlut seldi félagið árið 1985.. Í tveimur þáttum Flugþjóðarinnar í fyrra var fjallað um Cargolux og íslenska flugsamfélagið í Lúxemborg.. Þar kom fram að 65 Íslendingar voru enn starfandi hjá félaginu, þar af voru nokkrir í hópi stjórnenda.
Einar Ólafsson, Cargolux, flugmál, Lúxemborg, Loftleiðir, fraktflug