Farþegi um borð í Norrænu: Niðurstaða MISRYOUM um annað afbrigði hantaveiru

Sjúklingur sem greindist um borð í Norrænu reyndist með mildari hantaveiru, Puumala, að sögn MISRYOUM.
Þetta segir í fréttum færeyska ríkisfjölmiðilsins KVF en þar er einnig greint frá því að maðurinn, sem heitir Jakob Larsen, sé ekki smitaður af lífshættulega afbrigðinu sem hefur verið áberandi í fréttum undanfarið.. Hann greindist með aðra, mildari útgáfu veirunnar, sem nefnist Puumala.. Jakob var um borð í Norrænu á leið til Færeyja þann 19.. apríl þegar honum sló skyndilega niður og ástand hans versnaði hratt.. Hann var þá lagður inn á Landssjúkrahúsið í Færeyjum
en þaðan fluttur með sjúkraflugi á háskólasjúkrahúsið í Óðinsvéum, þar sem staðfest var að um hantaveiru væri að ræða.. „Daninn, sem var lagður inn á sjúkrahús í Færeyjum, var ekki veikur af lífshættulegu hantaveirunni sem við heyrum um í alþjóðlegum fjölmiðlum, heldur af mun mildari útgáfu af hantaveiru, Puumala, sem smitast ekki milli fólks,“ segir Shahin Gaini, prófessor í smitsjúkdómum við Háskóla Færeyja.. Engin merki um upphaf heimfaraldurs Embætti landlæknis hér á Íslandi sendi frá
sér tilkynningu í gær þar sem fram kemur að „allur almenningur þurfi ekki að hafa áhyggjur“ heldur sé það einungis farþega, áhafnar og náinna tengiliða skemmtiferðaskipsins MV Hondius að fylgja leiðbeiningum.. Þar segir einnig að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hafi lýst því yfir að engin merki séu um að þetta sé upphaf heimsfaraldurs.. „Það er verið að beita vel þekktum sóttvarnaaðgerðum, þar á meðal smitrakningu, einangrun, vöktun og almennum sóttvörnum eins og þrifum, sem geta rofið smitkeðjur
og komið í veg fyrir frekari dreifingu,“ segir í tilkynningunni frá landlækni.. Stefnir til Kanaríeyja Áætlað er að hollenska skipið verði fyrir utan strendur spænsku eyjunnar Tenerife snemma í fyrramálið, sunnudaginn 10.. maí, en farþegarnir verða fluttir á „algjörlega einangrað, afgirt svæði“, sagði Virginia Barcones, yfirmaður neyðarþjónustu Spánar.. Þetta kemur fram í frétt sem birt var á katarska fjölmiðlinum Al Jazeera í morgun.. Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður WHO, verður á eyjunni til að aðstoða við
að samræma brottflutning farþega, samkvæmt heimildum spænska ráðuneytisins.. Þrátt fyrir að þrír hafi látist frá því að faraldurinn braust út og fimm farþegar sem fóru frá borði séu staðfest smitaðir af hantaveiru, sagði útgerðarfyrirtækið Oceanwide Expeditions á föstudag að enginn um borð í skipinu væri með einkenni hugsanlegrar sýkingar.. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur sem fyrr segir hættuna fyrir almenning vegna faraldursins litla og hefur Christian Lindmeier, talsmaður WHO, sagt að „þetta sé ekki nýtt Covid“.