iceland news

Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa í Lynghaga

Börnum og foreldrum í Lynghaga hefur tekist að bjarga vinsælum spýtukofa eftir óvænta deilu við garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar.

Fréttastofa verður í beinni útsendingu frá fögnuði barnanna í sjónvarpsfréttum klukkan 18:30.. „Við erum bara búin að fá mjög af-dráttar-laust leyfi fyrir tíma-bundum af-notum af borgar-landi undir kofann en í stjórnsýslunni er þetta nú bara leyfi sem allir borgar-búar geta sótt um,“ segir Anna Kristín Blön-dal Jóhannes-dóttir sem hefur nú, ásamt öðrum for-eldrum og börnum við Lyng-haga, hrundið aðförinni að kofanum.Leyfið ný-fengna rennur út í október en Anna Kristín segir kofanum engu að síður borgið

þar sem hægt er að sækja um endur-nýjun leyfisins og þá væntan-lega út í hið óendan-lega.. „Að því gefnu að við séum ekki að gera eitt-hvað sem ekki má, rusla til eða eitt-hvað þannig, sem við erum náttúru-lega ekki að gera.“ Anna Kristín segir kofa-málið og þá sér-stak-lega upp-haf þess svolítið sér-stakt þar sem atlagan að honum hafi verið gerð frá garðyrkju Reykja-víkur-borgar, sviði sem hafi í raun ekkert um hann að segja.. Garðyrkjan angrar

börnin „Þannig að það er eitt-hvert garðyrkju-svið úti á Fiskislóð, en ekki um-hverfis- og skipu-lags-svið, sem byrjar að angra börnin okkar og okkur með þessu.. Þau hafa í raun hvorki um-boð til að setja okkur þessa afar-kosti né hóta því að rífa,“ segir Anna Kristín.Hún bendir á að þar fyrir utan komi garðyrkjan ekki að neinu slíku niður-rifi, heldur komi það alltaf í hlut um-hverfis- og skipu-lags-sviðs.. „Þannig að þetta er svolítið sér-stakt og engin

fyrir-myndar-stjórnsýsla hjá borginni þegar ein-hverjir em-bættis-menn eru að taka sér vald sem þeir hafa ekki.. Maður verður svolítið hugsi yfir því, sér-stak-lega þegar það beinist að börnum.“ Anna Kristín segir garðyrkju-svið borgarinnar því eigin-lega hafa búið þetta vanda-mál til.. „Og svo kom um-hverfis-sviðið og leysti það í rauninni fyrir okkur.. Þetta á náttúr-lega ekki að vera svona og miðað við hvað þetta er lítið sam-félag þá getur báknið í borginni verið svo ógeðs-lega þungt í

vöfum.“ Mikil sam-staða Anna Kristín segir hins vegar mjög ánægju-legt, í þeirri sundrungu sem almennt ein-kenni alla um-ræðu, að sjá hversu mikil og al-menn sam-staða myndaðist um kofann eftir að málið komst í hámæli.. „Ég er nú ekki mikið á sam-félags-miðlum en hef verið að snuðra um at-huga-semda-kerfin bæði á Vísi og RÚV og þar er bara alls konar fólk og bara allir sammála um hvað þetta er fárán-legt.“ Hún segir um-fjöllun fjölmiðla einnig hafa

haft þau skemmti-legu áhrif að krökkunum í kringum hann hafi snar-fjölgað.. „Krakka-straumurinn hingað hefur aukist og fleiri eldri krakkar að koma og það er rosa mikið líf við kofann.“Krakkarnir kalla kofann sinn „lista-gallerí“ og fáum blöðum er um það að fletta að hann stendur vel undir því og ljóst að hann stendur á frjóum jarðvegi fyrir alls konar menningar-lega vaxtar-sprota.Anna Kristín segir að þannig hafi fólk haft sam-band með alls konar hug-myndir um kofann sem

mið-punkt skapandi sumarnám-skeiða og til dæmis búið að lýsa áhuga á að setja þar upp leiksýningu og gera ein-hvers konar „krakka-heimildar-mynd“ um kofann.. „Þannig að þetta er allt búið að vera mjög skemmti-legt og jákvætt.“

spýtukofi, Reykjavík, Lynghagi, stjórnsýsla, börn, borgarland, samstaða

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Are you human? Please solve:Captcha


Secret Link