Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands

Allir farþegar hafa yfirgefið skipið og það er á leið til Hollands. Þrír farþegar létust, sjö greindust með hantaveiru og tveir Bretar eru á sjúkrahúsi.
Alls hafa þrír farþegar skipsins látist, sjö greinst með hantaveiru og þá leikur grunur á að tveir til viðbótar séu einnig smitaðir.. Heilbrigðisráðuneyti Spánar greindi frá því í gær að Spánverji sem sætir einangrun í Madríd eftir að hafa yfirgefið skipið væri líklega með veiruna.. Tveir Bretar, sem eru meðal staðfestu tilfellanna sjö, eru á sjúkrahúsi, annar í Hollandi og hinn í Suður-Afríku.. Þá er 21 áhafnarmeðlimur Hondius í einangrun í Hollandi.. Oceanwide Expeditions, sem
gerir út skipið, greindi frá því í gær að 27 áhafnarmeðlimir og tveir heilbrigðisstarfsmenn væru enn um borð í skipinu.. Utanríkisráðuneyti Úkraínu sagði fjóra Úkraínumenn þeirra á meðal og að þeir yrðu áfram um borð til að aðstoða við að sigla skipinu til Hollands.. Sóttvarnayfirvöld segja litlar líkur á umfangsmiklum faraldri í kjölfar útbreiðslunnar um borð.
hantaveira, skip, Holland, farþegar, áhöfn, einangrun, Oceanwide Expeditions